Útvarpsþátturinn Fótbolti.net sem var á X-inu 977 milli 12:00 og 14:00 í gær er nú kominn á netið þar sem hægt er að hlaða niður mp3 skrá af honum
Í gær var skoðað af hverju félög úti á landi eiga erfitt með að krækja í leikmenn á höfuðborgarsvæðinu. Rætt var við fimm viðmælendur auk þess sem Guðmundur Benediktsson fór yfir gang mála í enska boltanum.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Auðun Helgason (Selfoss), Stefán Logi Magnússon (Lilleström), Finnur Ólafsson (ÍBV), Heimir Þorsteinsson (Þjálfari Fjarðabyggðar), Páll Viðar Gíslason (Þjálfari Þórs), Guðmundur Benediktsson (Sérfræðingur)
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.



