Víkingur sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þar sem það var tilkynnt að Leifur Garðarsson hafi verið rekinn frá félaginu. Í yfirlýsingunni kemur ekki fram ástæða þess að hann er rekinnn. Félagið leitar nú að eftirmanni Leifs en þangað til stýrir Ólafur Ólafsson aðstoðarþjálfari liðinu.
Leifur hafði tekið við Víkingi fyrir tímabilið 2009 og undir hans stjórn vann liðið svo 1. deildina á síðustu leiktíð og leikur því í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.
Víkingur hafði verið mikið í umræðunni í síðasta mánuði eftir að Excel skjal þar sem Leifur gaf stöðumat á öllum leikmönnum liðsins lak á allan leikmannahópinn og svo til fjölmiðla og víðar. Í kjölfar þess var krísufundur þar sem málin voru rædd og félagið hafði sagt málinu lokið. Í dag staðfesti félagið svo að Leifur hefur verið rekinn úr starfi sínu.

Knattspyrnudeild Víkings hefur ákveðið að slíta samstarfi við Leif Garðarsson þjálfara liðsins frá og með deginum í dag, 3. mars 2011.
Ólafur Ólafsson aðstoðarþjálfari Víkings tekur tímabundið að sér þjálfun liðsins en leit að eftirmanni Leifs er þegar hafin.
Leifur tók við liði Víkings haustið 2008 og stýrði því til sigurs í 1. deild síðastliðið haust. Víkingur þakkar Leifi fyrir störf hans í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar.
F.h. Knattspyrnudeildar Víkings,
Björn Einarsson, formaður