Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   mið 18. október 2006 18:19
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða Forseta Íslands 
Roman Abramovic kemur til Íslands á morgun
Roman Abramovich, milljarðamæringurinn sem á enska úrvalsdeildafélagið Chelsea, kemur hingað til lands á morgun. Hann kemur hingað til lands sem ríkisstjóri Chukotka sem er í austanverðri Síberíu í Rússlandi og mun kynna sér málefni tengt nýtingu jarðhita, fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða, félagslegri þjónustu og ferðamálum a Íslandi.

Frá þessu er greint á vefsíðu Forseta Íslands nú í dag en forsetinn, Herra Ólafur Ragnar Grímsson, mun kynna þessi atriði fyrir Abramovich. Auk hans mun Kamil Ishakov sérlegur fulltrúi Vladimir Putin forseta Rússlands í austurhéruðum landsins verða með í för auk sendinefnd embættismanna.

Abramovich og samferðamenn hans munu meðal annars heimsækja höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur og orkuverið á Nesjavöllum, verkfræðistofuna Hnit, fiskvinnsluna Vísi, Saltfisksetrið, fiskeldið Stað, skóla og íþróttamannvirki í Grindavík og kynna sér starfsemi Bláa lónsins.

Roman Abramovich breytti landslaginu í heimsfótboltanum þegar hann keypti óvænt enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea 1. júlí 2003. Hann er forríkur og hefur aldrei hikað við að kaupa knattspyrnumenn, algjörlega óháð því hvaða verðmiði er settur á þá.

Síðan hann keypti Chelsea hefur hann keypt marga af bestu knattspyrnumönnum heims í dag, nú síðast í sumar keypti félagið þá Andriy Schevchenko og Michael Ballack.

Abramovic mun verða í Lundúnum í kvöld þegar stórlið Barcelona kemur í heimsókn og mætir Chelsea í Meistaradeild Evrópu. Okkar maður, Eiður Smári Guðjohnsen sem lék með Chelsea undanfarin sex ár er nú kominn í lið Barcelona og snýr því á fornar slóðir.

Herra Ólafur Ragnar Grímsson fór til Rússlands og Chukotka í ágúst 2003 í boði Roman Abramocih og flaug með honum í einkaþotu hans þaðan til Lundúna þar sem þeir voru viðstaddir leik Chelsea og Leicester 23. ágúst það ár.
Slapp
banner
banner