Andri Steinn Birgisson, leikmaður Keflvíkinga, sló á létta strengi á dögunum þegar hann tók upp nokkra símahrekki á liðsfélaga sína.
Andri fékk Rikka G, útvarpsmann á FM957, með sér í lið og þeir hringdu í fjóra leikmenn Keflvíkinga.
Andri fékk Rikka G, útvarpsmann á FM957, með sér í lið og þeir hringdu í fjóra leikmenn Keflvíkinga.
,,Mér datt þetta í hug fyrir bikarleikinn á móti FH. Ég fékk allt í einu þessa flugu í hausinn að það væri skemmtilegt að spila eitthvað svona fyrir leik. Þetta svínvirkaði og sló í gegn inn í klefa," sagði Andri Steinn við Fótbolta.net.
Andri og Rikki hringdu í Magnús Þóri Matthíasson og Hólmar Örn Rúnarsson og léku söngvarann Haffa Haff.
Magnús Þórir tók vel í tilboð frá Haffa Haff um að leika í tónlistarmyndbandi.
,,Ég held að allir strákar á hans aldri myndu segja já við þessu. Þetta leit vel út og hann var að fá slatta af pening í vasann fyrir þetta," sagði Andri Steinn.
Þá hringdu Andri og Rikki einnig í Einar Orra Einarsson og Paul McShane og léku erlendan mann að nafni Vladimir en hér að ofan má hlusta á alla hrekkina. Magnús Þórir er fyrstur, Paul McShane annar, Einar Orri þriðji og Hólmar Örn fjórði.

