,,Það er gott að koma saman, mikið af andlitum sem maður hefur ekki séð áður," sagði Grétar Rafn Steinsson leikmaður Bolton og íslenska landsliðsins í samtali við Fótbolta.net
Ísland leikur vináttulandsleik við Liechtenstein á morgun en þetta er síðasti leikurinn fyrir undankeppnina.
Grétar er að klára undirbúningstímabil sitt en enska úrvalsdeildin hefst á laugardag.
,,Ég er í toppstandi, það tók smá tíma eftir aðgerðina sem ég fór í í sumar. Ég er allur að koma til, hef verið að spila síðustu leiki og er tilbúinn fyrir næstu helgi."
,,Ég er með besta lækni í heimi og er í góðum málum."
,,Við spilum meiri fótbolta og ég er að spila. Hann er að gera góða hluti á meðan ég spila."
Nánar er rætt við Grétar í sjónvarpinu hér að ofan.






















