Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 23:31
Brynjar Ingi Erluson
„Mikilvægt að svara fyrir tapið gegn West Ham"
Regis Le Bris
Regis Le Bris
Mynd: EPA
Habib Diarra átti stórleik
Habib Diarra átti stórleik
Mynd: Sunderland
Franski stjórinn Regis Le Bris var ánægður með svarið sem hann fékk frá leikmönnum í 3-0 sigrinum á Burnley í nýliðaslagnum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Habib Diarra kom með mikla orku inn í leik Sunderland. Hann átti stóran þátt í fyrsta markinu er hann skaut boltanum í Axel Tuanzebe og í netið og svo gerði hann annað markið í síðari hálfleiknum.

Le Bris segir leikmenn hafa verið langt niðri eftir tapið á móti West Ham í síðustu umferð en þeir hafi svarað fyrir það í kvöld.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að bregðast við því við vorum svo vonsviknir eftir tapið gegn West Ham. Það var engin orka þar og við vorum ekki að spila eins og Sunderland. Það var því mikilvægt að sýna okkar leikstíl með þessari ákefð, hugrekki og hæfileikanum að pressa hátt og skapa færi. Þetta svar var líka ótrúlega mikilvægt því það er ekki auðvelt að vinna leiki í ensku úrvalsdeildinni," sagði Le Bris.

Diarra varð Afríkumeistari með Senegal á dögunum og vantaði ekki orkuna frá honum í leiknum gegn Burnley. Hann er enn hungraður og var Le Bris sérstaklega ánægður með hans frammistöðu.

„Þegar þú skorar tvö mörk og leggur þig allan fram fyrir liðið er það fullkomin endurkoma. Við þurftum ferskleika og þó þeir hafi verið frá út af Afríkukeppninni og við í basli þá erum við nú komnir með þessa orku og jákvæðni. Þetta er eins og að fá nýjan leikmann og vonandi höldum við þessu áfram á næstu vikum."

Sunderland er í 8. sæti með 36 stig en markmið Sunderland var að ná í 40 stig. Ef það tekst mun Le Bris og hópurinn setja sér nýtt markmið.

„Við settum okkur markmið sem var í kringum 40 stig. Það gæti verið mögulegt á þessu tímabili, kannski meira, en það kemur í ljós. Þetta er allt saman í ferli. Bráðlega munum við sjá hvort við náum markmiðum okkar. Ef það tekst munum við setja ný markmið," sagði Le Bris.
Athugasemdir
banner
banner