Brasilíski framherjinn Richarlison er genginn til liðs við Tottenham og er hann tilbúinn í slaginn með sínu nýja félagi.
Tottenham borgaði 50 milljónir punda fyrir leikmanninn öfluga og gæti greitt 10 milljónir til viðbótar í árangurstengdar aukagreiðslur.
Richarlison virðist heldur betur vera klár í slaginn og tilkynnti komu sína til Tottenham með myndbirtingu á Instagram.
Þar birti hann mynd af sér í leik gegn Arsenal sem segir meira en þúsund orð. Richarlison er klár í slaginn!
Richarlison is already north London ready! The new Spurs signing shared an old photo on his story... 😤 pic.twitter.com/2aPoZiU5kG
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) July 2, 2022
Athugasemdir