Mexíkóski sóknarmaðurinn Raul Jimenez setti nýtt vítaspyrnumet í ensku úrvalsdeildinni um helgina er hann skoraði í 3-2 tapi Fulham gegn Manchester United á Old Trafford.
Jimenez minnkaði muninn gegn Man Utd á 85. mínútu og var öryggið gersamlega uppmálað. Hann tók skringilegt tilhlaup að vítapunktinum áður en hann smellti boltanum efst í vinstra hornið.
Þetta var tólfta vítaspyrnumark hans í ensku úrvalsdeildinni úr tólf vítum og er hann því með 100 prósent nýtingu.
Þar með bætti hann met Yaya Toure sem skoraði úr öllum ellefu vítaspyrnum sínum með Manchester City.
12 - Raúl Jiménez has scored all 12 of his penalties in the Premier League - the most by any player with a 100% scoring record from the spot in the competition's history, overtaking Yaya Touré (11/11). Composure. pic.twitter.com/FUSPoY4jMx
— OptaJoe (@OptaJoe) February 1, 2026
Athugasemdir




