Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. mars 2023 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir aðrir uppaldir Chelsea menn á leið burt?
Gallagher á útleið?
Gallagher á útleið?
Mynd: Getty Images
Loftus-Cheek í baráttunni.
Loftus-Cheek í baráttunni.
Mynd: EPA
Mason Mount hefur verið orðaður í burtu frá Chelsea og var í slúðurpakkanum orðaður við Liverpool.

Hann er ekki eini uppaldi Chelsea maðurinn sem gæti yfirgefið félagið í sumar. Hinir tveir eru þeir Conor Gallagher og Ruben Loftus-Cheek.

Mount verður samningslaus eftir rúmlega ár og utan frá virðast hlutirnir vera þróast þannig að líkurnar aukast með hverri vikunni að hann yfirgefi Chelsea.

Blaðamaðurinn David Ornstein hjá The Athletic var gestur í Football Daily og ræddi um Chelsea-mennina.

„Ef Chelsea selur einhvern af þessum mönnum, sem góðar líkur eru á, þá geta þeir fengið inn hreinan hagnað í bækurnar sínar. Það er möguleiki sem er heillandi."

„Það er kannski ekki mikið um tilfinningar í þessum ákvörðunum, Chelsea mun horfa í tölurnar, gögnin og taka ákvarðanir út frá því. Ef leikmenn eru ekki að standa sig eins og Chelsea vill að þeir standi sig eða eru ekki í framtíðarsýn þeirra sem ráða og góð tilboð koma í þá, þá held ég að góðar líkur séu á því að þeir verði seldir. Það á að ræða við Mount um samninginn í sumar og þá verður hann annað hvort seldur eða framlengt við hann. Hann hefur hafnað nokkrum samningstilboðum til þessa. Þetta er áhugaverð staða,"
sagði Ornstein.
Athugasemdir
banner
banner