Iliman Ndiaye er lykilmaður í byrjunarliði Everton undir stjórn David Moyes og vill félagið ekki selja hann í sumar þrátt fyrir mikinn áhuga frá stórveldum.
Ndiaye er 26 ára fjölhæfur kantmaður, sem hefur skorað 17 mörk í 71 leik, og bendir heimildarmaður Sky hjá Everton að það sé engin ástæða fyrir félagið að óttast.
Ndiaye er með þrjú ár eftir af samningi og hefur félagið rætt við umboðsteymi leikmannsins um ný og endurbætt samningskjör, en engin niðurstaða hefur fengist í viðræðurnar enn sem komið er.
Senegalinn hefur hafnað samningstilboðum Everton hingað til útaf því að hann vill hafa riftunarákvæði innifalið í samningnum, en stjórnendur eru ekki á sömu blaðsíðu.
Ýmis stórlið hafa verið orðuð við Ndiaye að undanförnu en Everton er ekki talið reiðubúið til að selja leikmanninn fyrir minna en 65 til 70 milljónir punda.
Ndiaye er fæddur í Frakklandi en á 39 landsleiki að baki fyrir Senegal og varð Afríkumeistari með þjóð sinni í vetur, þar til titillinn var dæmdur af þeim tveimur mánuðum síðar. Hann er á sínum stað í landsliðshópnum sem fer á HM.
23.03.2026 06:00
Ndiaye öskraði í myndavélina - „Afríkumeistarar"






