,,Ég er ánægð, en þetta var ekkert fallegur fótbolti. Seinasta vika hefur veri svolítið erfið fyrir okkur svo það var dálítil þreyta í mannskapnum," sagði Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður ÍBV, eftir sannfærandi 4-1 sigur á FH í kvöld.
Sigurinn var afar mikilvægur þar sem ÍBV er núna í góðri stöðu í fallbaráttunni fyrir síðustu þrjá leikina.
Liðið situr í sjöunda sæti og segir Bryndís að liðið hafi ætlað sér að gera betur í sumar.
,,Við vildum gera betur. Við erum búnar að vera mjög ofarlega síðustu tvö ár og við erum búnar að vera rosalega óheppnar í sumar. Við lítum samt á björtu hliðarnar og klárum þetta með stæl."
Bryndís Lára segir að einstaklingsmistök hafi kostað liðið í sumar.
,,Vörnin er búin að vera mjög góð, en þa eru svona móment sem við klikkum á og það kostar okkur einhvernveginn alltaf mark. En að sama skapi erum við búnar að verjast mjög vel."
Athugasemdir























