Fimm milljóna punda verðmiði - Robinson í stað Robertson - Chelsea og Villa skoða leikmann PSG
   sun 04. janúar 2026 17:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Sturluð dramatík á Craven Cottage - Tottenham og Sunderland skildu jöfn
Florian Wirtz jafnar metin
Florian Wirtz jafnar metin
Mynd: EPA
Igor Thiago
Igor Thiago
Mynd: EPA
Liverpool heimsótti Fulham á Craven Cottage. Cody Gakpo fékk upplagt tækifæri til að koma Liverpool yfir snemma leiks en skaut framhjá.

Harry Wilson, fyrrum leikmaður Liverpool, var fyrstur til að koma boltanum í netið en markið var dæmt af. Eftir skoðun í VAR var ljóst að Wilson var réttstæður og markið fékk að standa.

Alexis Mac Allister var hársbreidd frá því að jafna metin snemma í seinni hálfleik en hann átti skalla í slá. Stuttu síðar skoraði Florian Wirtz eftir sendingu frá Conor Bradley í gegnum vörnina.

Markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það var gríðarlega tæpt og eftir vandlega skoðun VAR fékk markið að standa. Það var mikil dramatík undir lokin þar sem Cody Gakpo virtist vera skora sigurmarkið þegar fjórar mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma.

Leiknum var hins vegar ekki lokið því Harrison Reed gerði sér lítið fyrir og skoraði jöfnunarmark fyrir Fulham á lokasekúndum leiksins og tryggði liðinu stig.

Brentford er taplaust í síðustu fjórum leikjum en Igor Thiago fór hamförum í frábærum sigri liðsins gegn Everton.

Hinn 32 ára gamli Ben Davies fékk tækifæri í byrjunarliði Tottenham í fyrsta sinn á tímabilinu þegar liðið fékk Sunderland í heimsókn.

Hann nýtti tækifærið og skoraði eina mark fyrri hálfleiksins. Brian Brobbey jafnaði metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og þar við sat.

Newcastle vann sanngjarnan sigur á Crystal Palace. Bruno Guimaraes braut ísinn á 71. mínútu og það var síðan varnarmaðurinn Malick Thiaw sem innsiglaði sigurinn.

Newcastle 2 - 0 Crystal Palace
1-0 Bruno Guimaraes ('71 )
2-0 Malick Thiaw ('78 )

Tottenham 1 - 1 Sunderland
1-0 Ben Davies ('30 )
1-1 Brian Brobbey ('80 )

Everton 2 - 4 Brentford
0-1 Igor Thiago ('11 )
0-2 Nathan Collins ('50 )
0-3 Igor Thiago ('51 )
1-3 Beto ('66 )
1-4 Igor Thiago ('88 )
2-4 Thierno Barry ('90 )

Fulham 1 - 2 Liverpool
1-0 Harry Wilson ('17 )
1-1 Florian Wirtz ('57 )
1-2 Cody Gakpo ('90 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 23 15 5 3 42 17 +25 50
2 Man City 23 14 4 5 47 21 +26 46
3 Aston Villa 23 14 4 5 35 25 +10 46
4 Man Utd 23 10 8 5 41 34 +7 38
5 Chelsea 23 10 7 6 39 25 +14 37
6 Liverpool 23 10 6 7 35 32 +3 36
7 Fulham 23 10 4 9 32 32 0 34
8 Brentford 23 10 3 10 35 32 +3 33
9 Newcastle 23 9 6 8 32 29 +3 33
10 Sunderland 23 8 9 6 24 26 -2 33
11 Everton 22 9 5 8 24 25 -1 32
12 Brighton 23 7 9 7 33 31 +2 30
13 Bournemouth 23 7 9 7 38 43 -5 30
14 Tottenham 23 7 7 9 33 31 +2 28
15 Crystal Palace 23 7 7 9 24 28 -4 28
16 Leeds 22 6 7 9 30 37 -7 25
17 Nott. Forest 23 7 4 12 23 34 -11 25
18 West Ham 23 5 5 13 27 45 -18 20
19 Burnley 23 3 6 14 25 44 -19 15
20 Wolves 23 1 5 17 15 43 -28 8
Athugasemdir
banner