banner
   lau 24. janúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Liverpool til Bournemouth
Mynd: EPA
Mynd: EPA
23. umferð enska úrvalsdeildartímabilsins hefst í hádeginu þegar fallbaráttulið West Ham United fær nýliða Sunderland í heimsókn.

Hamrarnir eru fimm stigum frá öruggu sæti í deildinni þrátt fyrir sigur í síðasta leik en Sunderland er að reynast eitt af spútnik liðum tímabilsins og situr aðeins þremur stigum frá meistaradeildarsæti.

Hikstandi Manchester City tekur á móti botnliði Wolves síðar í dag. Lærlingar Pep Guardiola þurfa á sigri að halda eftir fjóra leiki í röð án sigurs í úrvalsdeildinni, en þeir töpuðu einnig afar óvænt í Meistaradeildinni gegn Bodö/Glimt í Noregi í miðri viku.

Fulham spilar svo við Brighton á meðan Burnley tekur á móti Tottenham áður en lokaleikur dagsins hefst.

Þar tekur Bournemouth á móti Englandsmeisturum Liverpool í áhugaverðum slag þar sem heimamenn eru að venjast raunveruleikanum án Antoine Semenyo.

Leikir dagsins
12:30 West Ham - Sunderland
15:00 Man City - Wolves
15:00 Fulham - Brighton
15:00 Burnley - Tottenham
17:30 Bournemouth - Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 25 17 5 3 49 17 +32 56
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 25 14 5 6 36 27 +9 47
4 Man Utd 25 12 8 5 46 36 +10 44
5 Chelsea 25 12 7 6 45 28 +17 43
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 25 12 3 10 39 34 +5 39
8 Everton 25 10 7 8 28 28 0 37
9 Sunderland 25 9 9 7 27 29 -2 36
10 Fulham 25 10 4 11 35 37 -2 34
11 Bournemouth 25 8 10 7 41 44 -3 34
12 Newcastle 25 9 6 10 35 36 -1 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 25 7 8 10 35 35 0 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 25 7 8 10 34 43 -9 29
17 Nott. Forest 25 7 5 13 25 38 -13 26
18 West Ham 25 6 5 14 31 48 -17 23
19 Burnley 25 3 6 16 25 49 -24 15
20 Wolves 25 1 5 19 16 48 -32 8
Athugasemdir
banner
banner
banner