Kieran McKenna, stjóri Ipswich, er sagður ofarlega á óskalista Bournemouth sem arftaki Andoni Iraola.
Fyrr í dag var tilkynnt um að Iraola myndi ekki stýra liðinu áfram að tímabilinu loknu. Samningur hans rennur út í sumar og greindi breska ríkisútvarpið frá því að fjölskylda hans hyggðist snúa aftur til heimalandsins, Spánar.
Iraola hefur stýrt Bournemouth síðan 2023 og náð eftirtektarverðum árangri. Liðið lagði m.a. topplið Arsenal að velli í síðustu umferð.

McKenna er, eins og áður sagði, stjóri Ipswich sem er á góðri leið með að tryggja sér aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir eins árs fjarveru.
Athletic greinir frá því að félagið vilji halda McKenna en það gæti reynst erfitt þar sem að hann er með kaupákvæði í samningi sínum.