Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 09:13
Elvar Geir Magnússon
ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið
Andri í leik með ÍA árið 2011.
Andri í leik með ÍA árið 2011.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjórn ÍA hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar tengdum Andra Júlíussyni.

Andri sem er fyrrum leikmaður ÍA var að þjálfa hjá yngri flokkum en skrifaði færslu á samfélagsmiðla þar sem hann fór yfir viðskilnað sinn við félagið.

Þar segir Andri að sér hafi verið „kastað eins og hverri annarri kúkableyju“ frá félaginu eftir að sér urðu á mistök. Hann segir að upp hafi komið atvik á æfingu 5. flokks þar sem drengur meiddi annan og hann hafi óvart átt þátt í því. Hann útskýrir það ekki nánar.

„Knattspyrnufélag ÍA vill árétta að allar frásagnir hafi fleiri en eina hlið. Félagið starfar almennt í samræmi við siðareglur og hegðunarviðmið Íþróttabandalags Akraness og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Knattspyrnufélag ÍA lítur svo á að málinu sé lokið og mun félagið ekki tjá sig frekar um það," segir í stuttu svari frá ÍA sem formaðurinn Eggert Herbertsson sendi út.
Slapp
banner