Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn.
Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í félaga sínum hjá Hetti á laugardagskvöldinu og sagði frá vinningnum og hvaða kerfi hann hafði notað. Félaganum leist svo vel á kerfið að hann notaði það til að tippa á Sunnudagsseðilinn og viti menn, hann fékk líka 13 rétta og 2.7 milljónir í sinn hlut.
Kerfið árangursríka er R 9-0-1081 þar sem fjórir leikir eru með einu tákni og níu leikir með þrem táknum og Ú merki. Seðillinn kostaði 14.053 krónur.
Þess má geta að báðir tippararnir taka þátt í getraunadeild Hattar en þar keppa 20 lið um meistaratitilinn og leika tvöfalda umferð á sama hátt og leikið er í ensku úrvalsdeildinni. Alls skipa 70 - 80 manns þessi 20 lið. Tipparinn sem fékk 13 rétta vann sinn leik í getraunadeildinni með 13 réttum gegn 10 réttum andstæðinganna.



