Fjölnismenn munu leika í Pepsi-deild karla að ári en það var staðfest eftir að liðið lagði ÍBV með þremur mörkum gegn engu í lokaumferðinni. Á sama tíma sigraði Fram Fylki með fjórum mörkum gegn þremur en Fjölnir þurfti að eins að landa stigi til að enda ofar en Fram.
Fögnuður leikmanna var ósvikinn í leikslok en Fótbolti.net var á staðnum og fangaði augnablikið.
Athugasemdir






















