![]() |
,,Stemmingin er virkilega fín og við erum spenntir. Hlökkum til að takast á við þetta, menn eru í góðu standi eru búnir að vera að spila með sínum liðum og það er hugur í mönnum.
,,Við erum búnir að vera að fara yfir Tyrkina, það ennþá nokkrir dagar í leik þannig að við eigum eftir að fara ennþá betur yfir þá. Við erum búnir að skoða slatta af atvikum með þeim og þeirra leikjum og hvernig þeir gera hlutina. Þannig að við erum vel undirbúnir og verðum ennþá betur undirbúnir á þriðjudaginn."
,,Ég myndi ekki segja að við séum „underdogs“, við vitum að við séum að fara að spila á móti frábæru fótboltaliði, en við erum líka meðvitaðir um okkar hæfileika og erum að fá þá hérna á okkar heimavöll og ef við ætlum okkur að gera einhverja hluti í þessum riðli, þá megum við ekki líta á okkur sem litla liðið. "
,,Við þurfum að sækja til sigurs og við þurfum að stefna á þrjú stig hvort sem við lítum á okkur sem „underdogs“ eða ekki.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
























