Mainoo gæti farið til Napoli - Man Utd horfir til Emery ef Amorim verður rekinn - Bayern vill Guehi
   þri 07. október 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
City setur plönin á ís
Mynd: EPA
Manchester City hefur sterklega verið orðað við kaup á hægri bakverði þar sem þörf var talin á styrkingu í þeirri stöðu.

En eftir frammistöðu Úsbekans Abdukodir Khusanov í byrjun tímabils hafa ráðamenn hjá City sett þau plön á ís - einbeita sér að öðrum stöðum í bili - allavega þangað til meiri þörf er á hægri bakverði.

Khusanov, sem er miðvörður, hefur þótt spila vel í hægri bakverðinum, átti góða leiki gegn Manchester United, Napoli og áður en hann meiddist gegn Arsenal.

Matheus Nunes hefur spilað í hægri bakverði frá því að Khusanov meiddist og svo er City líka með Rico Lewis. Það styttist í að Khusanov snúi aftur og er búist við að hann fari aftur í hægri bakvörðinn.

City hefur verið með augastað á Brasilíumanninum Wesley sem kost í hægri bakvarðarstöðuna.
Athugasemdir
banner
banner