Solanke á sölulista hjá Tottenham - Tilboðum Tottenham og Man Utd í Semenyo hafnað - Tottenham á eftir Samu
   þri 28. október 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeild kvenna í dag - Ísland í góðri stöðu
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Íslenska kvennalandsliðið mætir því norður írska í seinni leik liðanna í leik um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli í kvöld.

Liðin mættust ytra á föstudaginn og Ísland vann leikinn 2-0 og er því í góðri stöðu fyrir leikinn í kvöld. Varrnarmennirnir Glódís Perla Viggósdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir skoruðu mörkin.

Veðrið hefur ekki verið að leika við okkur Íslendinga undanfarnar vikur svo það verða mögulega skrautlegar aðstæður á Laugardalsvelli í kvöld.

þriðjudagur 28. október

Þjóðadeild kvenna - Umspil
18:00 Ísland-Norður-Írland (Laugardalsvöllur)
Athugasemdir
banner