Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 18. október 2023 23:20
Brynjar Ingi Erluson
Dortmund setur einn efnilegasta leikmann heims í agabann
Paris Brunner í leik með U17 ára landsliði Þýskalands
Paris Brunner í leik með U17 ára landsliði Þýskalands
Mynd: EPA
Paris Brunner, sóknarmaður Borussia Dortmund í Þýskalandi, mun ekki spila á næstunni eftir að hann var settur í agabann af félaginu.

Brunner er 17 ára gamall og er talinn með efnilegustu framherjum heims.

Í sumar var hann í U17 ára landsliði Þýskalands sem vann Evrópumótið og var Brunner markahæsti leikmaður mótsins með fjögur mörk.

Undanfarið hefur Brunner hins vegar verið til vandræða, en Dortmund hefur sett hann í bann eftir að hann braut agareglur félagsins. Þetta var ekki fyrsta brot leikmannsins.

Dortmund hefur ekki sett tímaramma á bannið og vildi þá ekki tjá sig frekar þar sem leikmaðurinn er undir 18 ára aldri.
Athugasemdir
banner