Það var nóg um að vera hjá Íslenskum leikmönnum í háskólaboltanum í Bandaríkjunum í síðastliðinni viku og fjöldin allur af íslenskum mörkum vestanhafs.
FH-ingurinn Dagur Traustason gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í 3-0 sigri Virginia Tech á Longwood í gærkvöld.
Þá var liðsfélagi hans í FH, Úlfur Ágúst Björnsson og Axel Máni Guðbjörnsson, leikmaður Fylkis, voru báðir á skotskónum fyrir Duke. Axel Máni skoraði eitt mark í 10-0 stórsigri á Averett.
En þeir spiluðu jafnframt báðir í 4-0 sigri á Pittsburgh þar sem Úlfur Ágúst átti stórleik og skoraði tvö mörk. Úlfur er þegar kominn með fjögur mörk og tvær stoðsendingar á tímabilinu.
Ívar Orri Gissurarson, leikmaður HK, átti stórleik í 3-1 sigri Albany gegn New Hamshire. HK-ingurinn skoraði tvö mörk og var valinn “Offensive Player of the Week” deildinni fyrir sína frammistöðu í leiknum. Alexander Clive Vokes, leikmaður Selfoss, var einnig í byrjunarliði Albany.
Lúkas Magni Magnason, fyrrum leikmaður KR, reyndist hetja Clemson er hann skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndum leiksins í 1-0 sigri á Elon. Lúkas var jafnframt í skotskónum í síðustu viku.
Magnús Ingi Halldórsson, leikmaður Hauka, var í byrjunarliði UMass Amherst og skoraði mark í sterkum 2-1 sigri á Denver.
Sigurður Steinar Björnsson, fyrrum leikmaður Víkings R., var á sínum stað í byrjunarliði Santa Barbara í bæði 1-0 sigri á Cal State Fullerton og 3-0 sigri á UC Riverside.
Steinar átti stoðsendinguna í fyrsta marki liðsinsgegn Riverside, hans þriðja á tímabilinu. Hann er í lykilhlutverki á sínu fyrsta ári og hefur byrjað alla ellefu leiki liðsins til þessa.
Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir, leikmaður KR, var á sínum stað í byrjunarliði West Florida í tveimur sigurleikjum liðsins gegn Lee, 1-0, og Trevecca Nazarene, 4-1.
Hún hélt uppteknum hætti og skoraði eina mark liðsins og gegn Lee og bætti svo við öðru markigegn Trevecca. Hún er nú þegar komin með sex mörk á tímabilinu í níu leikjum.
Júlía Ruth Thasaphong, leikmaður Víkings R., var að venju í byrjunarliði Oral Roberts í tveimur sigrum á Omaha, 2-0 og Denver, 1-0. Júlía lagði upp eitt marka liðsins í fyrri leiknum og er komin með fjögur mörk og jafn margar stoðsendingar á tímabilinu.