Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   fim 09. júlí 2015 22:08
Elvar Geir Magnússon
Pálmi Rafn: Verst að vitleysingurinn gaf mér gult
Pálmi Rafn Pálmason.
Pálmi Rafn Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason, fyrirliði KR, skoraði fyrra mark KR þegar liðið vann 2-1 sigur gegn írska liðinu Cork í Frostaskjólinu í kvöld. Samanlagður 3-2 sigur eftir framlengdan leik í kvöld og KR mætir Rosenborg í næstu umferð í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Lestu um leikinn: KR 2 -  1 Cork City

KR var marki undir og manni færri í hálfleik í kvöld eftir að Skúli Jón Friðgeirsson fékk rautt spjald á 43. mínútu.

„Við vorum frekar bjartsýnir þrátt fyrir stöðuna. Okkur fannst við hafa fulla stjórn á leiknum þó við höfum ekki gert mikið í byrjun leiks. Við fengum klaufalegt mark á okkur en mér finnst við miklu betra lið. Við vorum aldrei hræddir við þetta. Það var fögur sjón að sjá boltann fara inn," segir Pálmi.

„Við vorum sammála um það í hálfleik að við ætluðum að keyra á þennan leik og fara áfram. Það verður gaman að mæta Rosenborg en verst að vitleysingurinn gaf mér gult og ég verð í banni."

Pálma fannst lettneski dómarinn lélegur en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner