Daníel Laxdal, leikmaður Stjörnunnar var eðlilega ósáttur eftir 1-1 jafntefli síns liðs gegn Víkingum í dag.
Eftir rólega byrjun á leiknum, gerðist hreinlega allt síðasta korterið en Stjörnumenn enduðu leikinn tveimur færri en Michael Præst og Brynjar Gauti Guðjónsson fengu báðir að líta rautt spjald.
Eftir rólega byrjun á leiknum, gerðist hreinlega allt síðasta korterið en Stjörnumenn enduðu leikinn tveimur færri en Michael Præst og Brynjar Gauti Guðjónsson fengu báðir að líta rautt spjald.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 1 Víkingur R.
„Við erum mjög fúlir, mér fannst við geta klárað þennan leik, svo koma einhver skítaspjöld sem ég botna ekki í."
„Þetta var bara fáranlegt, ég get ekki sagt neitt meira um það."
Daníel segir að sitt lið hefði unnið leikinn ef rauðu spjöldin hefðu ekki farið á loft.
„Bæði lið vildu vinna og við hefðum gert það með 11 menn inni á vellinum."
„Þetta var bara almennileg tækling, aðeins að láta vita af sér. Beint rautt, ég veit það ekki, kannski voru þetta áhrif frá Víkingsbekknum."
Viðtalið við Daníel má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























