Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
banner
   mán 10. apríl 2023 22:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gústi Gylfa: Hann var sennilega okkar besti maður
Ágúst Gylfason.
Ágúst Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni í markinu átti góðan leik.
Árni í markinu átti góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Svekkjandi að tapa fyrir framan okkar stuðningsfólk og gefa Víkingum ekki aðeins meiri leik. Þetta var erfitt hjá okkur, náðum ekki alveg að spila okkar leik einhvern veginn. Við ætluðum að halda boltanum betur og Víkingar lokuðu vel á okkur. Við sköpuðum einhver færi en eftir að þeir skoruðu týpískt Víkingsmark, 'Niko special', varð þetta dálítið erfitt," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn gegn Víkingi í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  2 Víkingur R.

„Við hefðum mátt „matcha" þá betur líkamlega, þeir voru kröftugir og sterkari en við út á velli. Við þurfum bara að rífa okkur áfram og halda okkar uppleggi. Það mun skila sigrum og við þurfum bara að horfa fram á við."

„Við fengum fullt af góðri hvatningu frá okkar fólki í stúkunni og einhverjir Víkingar sem voru mættir líka. Þetta var bara hörkukvöld, frábært veður og fínn fótboltaleikur. Því miður fengum við lítið út úr honum en núna er fyrsti leikurinn búinn og mesti hrollurinn farinn úr þessu. Nú er bara áfram gakk og fara í næsta leik."


Hilmar Árni Halldórsson varðist sem fremsti maður í kvöld. „Við erum búnir að spila þetta nokkuð oft í vetur og með Hilmar frammi. Það hefur komið mjög vel út. Ég er nokkuð sáttur við hans frammistöðu og gaman að sjá hann aftur á vellinum."

Árni Snær Ólafsson varði mark Stjörnunnar í kvöld og átti góðan leik. „Árni var frábær í markinu og hélt okkur inn í leiknum í stöðunni 1-0 - þá gat allt gerst. Hann var sennilega okkar besti maður," sagði Gústi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner