Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 15:56
Brynjar Ingi Erluson
Besta deild kvenna: Ótrúleg byrjun nýliðanna - FH vann í Garðabæ
Kvenaboltinn
Eyjakonur eru á toppnum með fullt hús stiga
Eyjakonur eru á toppnum með fullt hús stiga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH-ingar fagna í dag
FH-ingar fagna í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýliðar ÍBV eru áfram með fullt hús stiga í Bestu deild kvenna eftir góðan 2-0 sigur á Þór/KA á Hásteinsvelli. FH-ingar unnu Stjörnuna á sama tíma, 2-1, í Garðabæ.

Eyjakonur unnu Lengjudeildina sannfærandi á síðasta tímabili en það bjóst þó enginn við þessari byrjun frá þeim.

Þær unnu Fram í fyrstu umferðinni og fylgdu því á eftir með því að vinna Víking og Val.

Fjórði sigurinn kom gegn Þór/KA í dag, en Eyjakonur voru með mikla yfirburði framan og ekki hægt að segja að það hafi verið ósanngjarnt þegar Allison Grace Lowrey kom þeim yfir á 30. mínútu.

Olga Sevcova fór upp vinstra megin, kom boltanum inn á teiginn á Lowrey sem setti boltann í markið. Eyjakonur fengu fullt af færum í fyrri hálfleiknum og gátu hafa skorað fleiri, en þurftu að bíða í dágóðan tíma eftir öðru markinu.

Það kom á 69. mínútu er Olga setti boltann í Erlu Hrönn Unnarsdóttur, fékk hann aftur og skoraði. Enn einn sigurinn hjá ÍBV sem er á toppnum með fullt hús stiga en Þór/KA í næst neðsta sæti með 2 stig.

FH-ingar tóku öll stigin í Garðabæ

FH náði í annan sigur sinn í deildinni með því að leggja Stjörnuna að velli, 2-1, í Garðabæ.

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir átti hornspyrnu á 36. mínútu sem fór á fjær á Deja Jaylyn Sandoval sem stangaði boltann í netið.

FH var betri aðilinn í fyrri hálfleiknum og skapaði sér betri færi, en Stjarnan var þó vel inn í leiknum og byrjaði seinni hálfleikinn mjög vel.

Hálftíma fyrir leikslok gerði Guðni Eiríksson þrefalda skiptingu sem átti etir að skipta sköpum. Berglind Freyja Hlynsdóttir sendi boltann í teiginn og lét Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir boltann fara á Hafrúnu Birnu Helgadóttur sem kláraði glæsilega.

Stjörnukonur ógnuðu undir lokin og náðu sárabótarmarki er Hulda Hrund Arnarsdóttir skoraði með þrumuskoti í stöng og inn, en þetta kom allt of seint hjá heimakonum sem þurftu að sætta sig við tap í dag.

FH er í 3. sæti með 7 stig en Stjarnan í 5. sæti með 4 stig.

Stjarnan 1 - 2 FH
0-1 Deja Jaylyn Sandoval ('36 )
0-2 Hafrún Birna Helgadóttir ('64 )
1-2 Hulda Hrund Arnarsdóttir ('93 )
Lestu um leikinn

ÍBV 2 - 0 Þór/KA
1-0 Allison Grace Lowrey ('30 )
2-0 Olga Sevcova ('69 )
Lestu um leikinn
Besta kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 7 6 0 1 21 - 8 +13 18
2.    FH 7 5 1 1 18 - 9 +9 16
3.    ÍBV 7 4 1 2 13 - 13 0 13
4.    Þróttur R. 7 4 0 3 11 - 7 +4 12
5.    Stjarnan 7 3 2 2 10 - 7 +3 11
6.    Víkingur R. 7 3 0 4 14 - 17 -3 9
7.    Grindavík/Njarðvík 7 2 2 3 8 - 13 -5 8
8.    Valur 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
9.    Fram 7 1 1 5 8 - 18 -10 4
10.    Þór/KA 7 0 2 5 11 - 19 -8 2
Slapp
banner