Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 16:59
Brynjar Ingi Erluson
Kristian Hlyns á skotskónum - Bræðurnir ónotaðir varamenn
Kristian Nökkvi hefur verið sjóðandi heitur á síðustu mánuðum
Kristian Nökkvi hefur verið sjóðandi heitur á síðustu mánuðum
Mynd: EPA
Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði tíunda deildarmark sitt fyrir Twente sem steig stórt skref í átt að Meistaradeild Evrópu í dag.

Landsliðsmaðurinn gerði þriðja mark Twente í 4-0 stórsigri á gömlu félögunum í Spörtu Rotterdam.

Hann hefur verið iðinn við kolann eftir áramót og var að gera tíunda deildarmarkið.

Twente er í 3. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með 58 stig, tveimur stigum meira en NEC Nijmegen þegar ein umferð er eftir, en þriðja sætið gefur farseðil í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Nijmegen mætti einmitt Groningen á sama tíma í leik sem tapaðist, 2-1.

Bræðurnir Brynjólfur Andersen Willumsson og Willum Þór Willumsson voru á bekknum. Brynjólfur á bekknum hjá Groningen og Willum hjá Nijmegen, en fengu ekki tækifæri til að mætast.

Nijmegen er í 4. sæti með 56 stig en Groningen í 9. sæti með 45 stig.

Alfons Sampsted fór af velli í hálfleik í 4-1 tapi Go Ahead Eagles gegn PSV. Stefán Ingi Sigurðarson var einnig í byrjunarliðinu en honum var skipt af velli á 72. mínútu. Eagles eru í 12. sæti með 38 stig.
Slapp
banner