Jose Mourinho eða sá sérstaki hefur kveðið niður orðróm um að hann sé kominn í viðræður við spænska félagið Real Madrid, en þetta sagði hann á blaðamannafundi um helgina.
Háværar sögusagnir eru um það að Mourinho muni taka við Real Madrid af Alvaro Arbeloa eftir tímabilið.
Hann er sagður lang líklegastur til þess að taka við Real Madrid sem er í molum eftir slakt tímabil.
Mourinho er sagður rétti maðurinn til þess að rétta úr kútnum og breyta andrúmsloftinu í klefanum, en Portúgalinn gefur þó lítið fyrir fréttir síðustu vikna. Hann segist skuldbundinn Benfica út tímabilið.
„Ég hef ekki verið í neinu sambandi við forsetann eða einhvern sem sinnir mikilvægu hlutverki innan félagsins. Ég hef ekki talað við neinn eða verið í sambandi við Real Madrid og verð það ekki heldur fyrr en eftir síðasta deildarleikinn gegn Estoril,“ sagði Mourinho.
Síðasti leikur Benfica fer fram 16. maí og mun Mourinho væntanlega fara í viðræður við Madrídinga þegar tímabilinu lýkur. Hann er samningsbundinn Benfica út næsta tímabil, en í samningnum er ákvæði sem gerir bæði honum og félaginu kleift að rifta honum innan tíu daga frá lokum tímabilsins.


