Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   sun 10. maí 2026 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að leikmenn verði að fara eftir „vandræðalegt" tímabil
Mynd: EPA
Wolves mun spila í Championship deildinni á næstu leiktíð en liðið er á botni úrvalsdeildarinnar aðeins með 18 stig þegar tvær umferðir eru eftir.

Rob Edwards, stjóri liðsins, sagði eftir 3-0 tap liðsins gegn Brighton í gær að það yrðu miklar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil.

„Sumir verða að fara, við erum á botninum. Þetta hefur verið vandræðalegt, þeir verða að fara," sagði Edwards.

„Það eru tveir leikir eftir, verðum að halda haus og taka því sem við munum fá næstu vikurnar og svo getum við hafist handa. Við vitum að það vera miklar breytingar."
Slapp
banner
banner
banner