Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Valencia þremur stigum frá Evrópu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þremur fyrstu leikjum dagsins er lokið í efstu deild spænska boltans þar sem Valencia er mögulega búið að forðast fallbaráttuna eftir óvæntan sigur á útivelli gegn Athletic Bilbao.

Hugo Duro klúðraði vítaspyrnu fyrir Valencia í fyrri hálfleik en Umar Sadiq setti svo eina mark leiksins í síðari hálfleiknum. Heimamenn í Bilbao voru sterkari aðilinn stærsta hluta leiksins en náðu ekki að skora.

Valencia er með 42 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en fallbaráttan á Spáni er ótrúlega spennandi í ár. Sex stig skilja 10. sæti að frá 19. sæti deildarinnar. Valencia er fimm stigum frá fallsæti og á sama tíma aðeins þremur stigum frá sæti í Sambandsdeildinni fyrir næstu leiktíð.

Getafe er í síðasta sambandsdeildarsætinu eftir markalaust jafntefli við botnlið Real Oviedo sem verður fyrsta félagið til að falla niður um deild í lokaumferðunum. Oviedo er níu stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir og er markatala liðsins hörmuleg.

Getafe var sterkari aðilinn í Oviedo og fengu heimamenn tvö rauð spjöld í síðari hálfleik en tókst að halda út. Níu leikmenn Oviedo börðust eins og ljón til að þrauka síðustu 20 mínútur leiksins og takast að halda markinu hreinu.

Að lokum gerði Mallorca jafntefli við Villarreal í leik þar sem Vedat Muriqi og Ayoze Pérez skoruðu mörkin. Mallorca er tveimur stigum frá fallsæti eftir jafnteflið á meðan Villarreal siglir lygnan sjó í þriðja sæti.

Heimamenn í Mallorca voru sterkari aðilinn í dag en þeim tókst ekki að gera sigurmark.

Athletic Bilbao 0 - 1 Valencia
0-0 Hugo Duro ('27 , Misnotað víti)
0-1 Umar Sadiq ('72 )

Real Oviedo 0 - 0 Getafe
Rautt spjald: Javi Lopez, Oviedo ('54)
Rautt spjald: Kwasi Sibo, Oviedo ('78)

Mallorca 1 - 1 Villarreal
0-1 Ayoze Perez ('31 , víti)
1-1 Vedat Muriqi ('45 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 31 1 6 95 36 +59 94
2 Real Madrid 38 27 5 6 77 35 +42 86
3 Villarreal 38 22 6 10 72 46 +26 72
4 Atletico Madrid 38 21 6 11 62 44 +18 69
5 Betis 38 15 15 8 59 48 +11 60
6 Celta 38 14 12 12 53 48 +5 54
7 Getafe 38 15 6 17 32 38 -6 51
8 Vallecano 38 12 14 12 41 44 -3 50
9 Valencia 38 13 10 15 46 55 -9 49
10 Real Sociedad 38 11 13 14 59 61 -2 46
11 Espanyol 38 12 10 16 43 55 -12 46
12 Athletic 38 13 6 19 43 58 -15 45
13 Elche 38 10 13 15 49 57 -8 43
14 Alaves 38 11 10 17 44 56 -12 43
15 Sevilla 38 12 7 19 46 60 -14 43
16 Osasuna 38 11 9 18 44 50 -6 42
17 Mallorca 38 11 9 18 47 57 -10 42
18 Levante 38 11 9 18 47 61 -14 42
19 Girona 38 9 14 15 39 55 -16 41
20 Oviedo 38 6 11 21 26 60 -34 29
Slapp
banner