Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 14:15
Brynjar Ingi Erluson
Stórleikur Elíasar dugði ekki - Lífsnauðsynlegur sigur hjá Valgeiri
Elías Rafn átti stórleik í marki Midtjylland
Elías Rafn átti stórleik í marki Midtjylland
Mynd: EPA
Valgeir Lunddal spilaði í mikilvægum sigri
Valgeir Lunddal spilaði í mikilvægum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf unnu lífsnauðsynlegan 3-1 sigur á toppbaráttuliði Elverberg í þýsku B-deildinni í dag.

Düsseldorf var í fallsæti fyrir leikinn á meðan Elverberg gat svo gott sem tryggt úrvalsdeildarsætið með sigri.

Heimamenn í Düsseldorf hafa átt erfitt tímabil en fundu neistann gegn Elverbergs og náðu þriggja marka forystu áður en Valgeir kom inn af bekknum á 56. mínútu.

Undir lok leiks tókst Elverberg að minnka muninn er Tim Oberdorf setti boltann í eigið net en fleiri urðu mörkin ekki.

Düsseldorf er komið upp úr fallsæti fyrir lokaumferðina. Á sama tíma voru þetta frábær úrslit fyrir Stefán Teit Þórðarson og félaga í Hannover sem er í 3. sæti með 59 stig, jafnmörg og Elverberg. Hannover á því enn möguleika á að fara beint upp.

Brynjar Ingi Bjarnason var ónotaður varamaður hjá Greuther Furth sem tapaði fyrir Herthu Berlín, 2-1. Greuther Furth er í næst neðsta sæti með 34 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.

Daníel Freyr Kristjánsson byrjaði hjá Fredericia sem tapaði fyrir Vejle, 2-0, í fallriðli dönsku úrvalsdeildarinnar. Fredericia er í næst neðsta sæti með 31 stig og svo gott sem fallið úr deildinni.

Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland gerðu markalaust jafntefli við Nordsjælland í næst síðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

Landsliðsmarkvörðurinn var langbesti maður Midtjylland og fær 9,1 á FlashScore. Frábær leikur hans náði þó ekki að kveikja í liðsfélögunum sem náðu ekki að skora og getur því AGF tryggt titilinn með sigri á Bröndby síðar í dag.

Mikael Neville Anderson kom inn af bekknum hjá Djurgården sem vann 4-2 sigur á nágrönnum sínum í AIK í sænsku úrvalsdeildinni. Hann lék síðasta hálftímann með Djurgården sem er í 4. sæti með 13 stig.
Slapp
banner
banner
banner