Kólumbíski sóknartengiliðurinn James Rodriguez er á förum frá bandaríska félaginu Minnesota United en þetta herma heimildir Athletic.
Samkvæmt miðlinum er líklegt að James muni hitta kólumbíska landsliðið eftir deildarleik Minnesota á miðvikudag.
Rodriguez, sem er 34 ára gamall. vill ná góðum undirbúningi með Kólumbíu fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar, en það verður líklega hans síðasta heimsmeistaramót.
Leikurinn með Minnesota verður þá líklega hans síðasta með félaginu, en samningur hans rennur út í sumar. Minnesota getur virkt ákvæði sem framlengir hann um hálft ár til viðbótar, en það mun ekki gera það nema Rodriguez hafi áhuga á því.
Kólumbíumaðurinn gekk í raðir Minnesota í febrúar en hefur aðeins spilað fjóra leiki, þar af einn í byrjunarliði.
Ekki er alveg ljóst hvað tekur við hjá Rodriguez eftir HM, en einhverjir miðlar hafa fullyrt að hann muni leggja skóna skóna á hilluna.
Rodriguez skaust fram á sjónarsviðið árið 2014 er hann var markahæsti leikmaður HM. Í kjölfarið fór hann til Real Madrid frá Porto. Hann hefur einnig leikið með Bayern München, Everton, Rayo Vallecano og Olympiakos svo einhver félög séu nefnd ásamt því að eiga 124 landsleiki og 31 mark fyrir Kólumbíu.

