Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 16:50
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Evrópusætið í hættu hjá Freiburg
Luka Vuskovic skoraði úr aukaspyrnu
Luka Vuskovic skoraði úr aukaspyrnu
Mynd: EPA
Hamburger 3 - 2 Freiburg
1-0 Bakery Jatta ('14 )
1-1 Igor Matanovic ('16 )
2-1 Luka Vuskovic ('64 )
3-1 Fabio Balde ('67 )
3-2 Igor Matanovic ('87 )

Freiburg, sem er komið í úrslit Evrópudeildarinnar, gæti misst af því að komast í Evrópukeppni á næsta ári eftir að liðið tapaði fyrir Hamburger SV, 3-2, í næst síðustu umferð þýsku deildarinnar í dag.

Nýliðarnir tóku forystuna snemma leiks er Bakery Jatta skoraði á fjærstönginni eftir sendingu frá Albert Grönbæk.

Igor Matanovic jafnaði tveimur mínútum síðar er hann stýrði laglegri fyrirgjöf Lukas Kubler í netið og stóðu leikar í hálfleik, 1-1.

Luka Vuskovic, sem er á láni hjá Hamburger frá Tottenham, skoraði úr aukaspyrnu á 64. mínútu er hann hamraði boltanum undir vegginn. Markvörðurinn var með höndina í boltanum, en úlnliðurinn gaf aðeins eftir og lak boltinn í netið.

Fabio Balde kom þeim í tveggja marka forystu eftir svakalegan sprett á hægri vængnum áður en Matanovic minnkaði muninn nokkrum mínútum fyrir leikslok með skalla eftir hornspyrnu.

Vont tap fyrir Freiburg sem er í 7. sæti deildarinnar með 44 stig, sem gefur farseðil í Sambandsdeildina, en Freiburg mætir Leipzig í lokaumferðinni.

Ef Freiburg tapar þar mun liðið líklega þurfa að vinna Evrópudeildina til þess að komast í Evrópukeppni. Hamburger er á meðan í 11. sæti með 37 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner