Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 17:41
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak og félagar hleyptu lífi í botnbaráttuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Koln 1 - 3 Heidenheim
0-1 Jan Schoppner ('8 )
1-1 Marius Bulter ('10 )
1-2 Arijon Ibrahimovic ('28 )
1-3 Jan Schoppner ('72 )

Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn á miðjunni hjá FC Köln í tapi á heimavelli gegn Heidenheim. Leikurinn var nokkuð jafn en gestirnir nýttu færin sín betur svo lokatölur urðu 1-3.

Köln var búið að bjarga sér frá falli fyrir upphafsflautið í dag á meðan Heidenheim reynir að afreka hið ótrúlega í botnbaráttunni. Liðið virtist öruggt að falla niður um deild en er búið að vinna þrjá af síðustu fimm deildarleikjum, auk þess að ná jafntefli við Þýskalandsmeistara FC Bayern, og á núna möguleika á að komast í umspilssæti um áframhaldandi þátttöku í deildinni.

Þriðja neðsta lið þýsku deildarinnar spilar umspilsleiki við þriðja sætið úr næstefstu deild. Eins og staðan er eftir sigur Heidenheim þá eru botnliðin þrjú öll jöfn á stigum fyrir lokaumferðina.

Heidenheim, Wolfsburg og St. Pauli eiga 26 stig eftir 33 umferðir en Wolfsburg er með bestu markatöluna, eða 26 mörk í mínus. Heidenheim og St. Pauli eru með 29 mörk í mínus.

Heidenheim á heimaleik við Mainz, sem siglir lygnan sjó, í lokaumferðinni á meðan St. Pauli og Wolfsburg eigast við í gríðarlega mikilvægum innbyrðisslag.

Það er því mjög mikil spenna fyrir lokaumferð tímabilsins í botnbaráttunni.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner
banner