Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   mið 10. júní 2015 12:39
Magnús Már Einarsson
Ísland - Tékkland
Kolbeinn: Þetta æsir mig vonandi upp
Icelandair
Kolbeinn í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Kolbeinn í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mikil tilhlökkun fyrir þennan leik," sagði Kolbeinn Sigþórsson framherji íslenska landsliðsins um leikinn gegn Tékkum á föstudag.

Ísland tapaði 2-1 gegn Tékkum í nóvember en Kolbeinn segir hægt að laga margt frá þeim leik.

„Við þurfum að bæta allt. Sóknarleikinn, varnarleikinn og ýmsar taktískar breytingar. Það er ýmislegt sem við þurfum að breyta og við erum að æfa það á fullu. Við ætlum að koma Tékkunum á óvart,"

Kolbeinn hefur raðað inn mörkum með íslenska landsliðinu í gegnum tíðina en hann hefur ekki fundið netmöskvana í síðustu fjórum leikjum í undankeppninni.

„Það pirrar mig að heyra þetta. Þetta æsir mig vonandi upp og gerir mig ennþá hungraðari í að skora," sagði Kolbeinn ákveðinn.

Uppselt varð á leikinn á hálftima og búast má við fjöri í Laugardalnum á föstudag.

„Það verður pottþétt góð stemning hérna og það mun hjálpa okkur. Maður finnur inni á vellinum hversu góð stemning er hérna. Það er um að gera fyrir Tólfuna og alla inn á vellinum að styðja við okkur."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner