Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   fös 10. október 2014 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Emil Hallfreðs.: Ef við trúum því ekki þá getum við sleppt þessum leik
Icelandair
Emil Hallfreðsson
Emil Hallfreðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var sáttur með 0-3 sigur liðsins á Lettlandi í kvöld en hann átti góðan leik á vinstri vængnum.

Emil var sífellt að ógna marki Letta með góðum sendingum og fyrirgjöfum en hann var einn besti maður vallarins í dag.

,,Þetta var bara alveg eins og þú segir þolinmæðisvinna og komum í hálfleik nokkuð rólegir. Við þannig séð dominerum leikinn þrátt fyrir að skapa ekki nógu mörg færi en við vorum rólegir og vissum að þeir myndu þreytast í seinni hálfleik," sagði Emil.

,,Það var mikilvægt að setja þetta fyrsta mark og vorum búnir að eiga nokkur færi fyrir en það var létt á þessu fyrsta marki. Þetta var virkilega vel gert og frábær leikmaður en hann var reyndar búinn að klúðra færi sem ég lagði upp á hann en hann bætti það upp með þessu glæsimarki."

,,Ég held að ég hafi verið ágætur. Ég átti marga crossa og skot sem máttu fara betur en það kemur bara í næsta leik á móti Hollandi. Mikilvægast af öllu er að hafa tekið þessi þrjú stig heim og sex stig í tveim leikjum er frábær byrjun og nú fer öll einbeiting á Hollandsleikinn."

,,Ef við trúum því ekki þá getum við sleppt þessum leik. Ég held að við höfum allir trú á verkefninu og við förum núna næstu daga að skipuleggja þann leik og vonandi getum við átt jafn góðan leik og þessa síðustu tvo núna,"
sagði hann að lokum.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner