Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   sun 11. maí 2025 19:29
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Breiðablik jafnar Vestra á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 0 - 1 Breiðablik
0-1 Aron Bjarnason ('13)

Lestu um leikinn: KA 0 -  1 Breiðablik

KA tók á móti Breiðabliki í fyrri leik dagsins af tveimur í Bestu deild karla og byrjuðu Íslandsmeistararnir betur.

Aron Bjarnason tók forystuna á 13. mínútu eftir góðan undirbúning frá Höskuldi Gunnlaugssyni og var staðan 0-1 eftir bragðdaufan fyrri hálfleik, þar sem Blikar héldu boltanum vel innan liðsins en fundu ekki glufur á varnarleik Akureyringa.

Viðar Örn Kjartansson fékk dauðafæri til að jafna metin í upphafi síðari hálfleiks en lét Anton Ara Einarsson verja frá sér. Eftir það var lítið að frétta fyrr en á lokamínútunum þegar KA-menn lögðu alla sína orku í að leita að jöfnunarmarki.

Anton Ari varði þó skallatilraun áður en Tobias Thomsen bjargaði á marklínu eftir hornspyrnu til að halda hreinu fyrir gestina úr Kópavogi. Lokatölur 0-1 eftir tíðindalítinn leik.

Þetta eru dýrmæt stig fyrir Blika sem tekst með þessu að jafna spútnik lið Vestra á toppi deildarinnar. Liðin deila toppsætinu með 13 stig eftir 6 umferðir.
Athugasemdir
banner