Í miðasölunni á Laugardalsvelli hefur verið nóg að gera en þar er kona í fullri vinnu við að segja nei við fólk enda er löngu uppselt á landsleikinn við Tékkland sem fram fer í kvöld.
Þegar Fótbolti.net mætti á svæðið voru einmitt erlendir ferðamenn að reyna að fá miða á leikinn en það skilaði ekki árangri.
Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá stutt spjall við konuna geðþekku í miðasölunni sem við því miður gleymdum að fá nafnið hjá.
Athugasemdir






















