,,Það er klárt að það var markmiðið hjá okkur að fara upp. Við héldum að við værum komnir upp og það kom smá brot í þetta en við snérum bökum saman og unnum þennan leik," sagði Ólafur Brynjólfsson þjálfari Gróttu eftir að liðið tryggði sér sæti í 1. deild að ári með 4-1 sigri á Aftureldingu í dag.
Grótta var í vænlegri stöðu á dögunum áður en liðið tapaði fjórum leikjum í röð. Grótta komst hins vegar aftur á sigurbraut í dag og kláraði dæmið.
Grótta var í vænlegri stöðu á dögunum áður en liðið tapaði fjórum leikjum í röð. Grótta komst hins vegar aftur á sigurbraut í dag og kláraði dæmið.
,,Þetta var alltof gott forskot. Við spiluðum á móti erfiðum lðium í bullandi fallbaráttu. Við sýndum hins vegar í dag að við erum klárlega annað besta liðið í 2. deild."
,,Það sást á liðinu í dag að gleðin var mikil og það voru allir tilbúnir að klára þetta."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir























