ÍR 3 - 2 Smári
1-0 Rósa Lind F. H. Víkingsdóttir ('15)
2-0 Sara Atladóttir ('28)
2-1 Harpa Karen N. Halldórsdóttir ('43)
2-2 Tara Dís Ármann ('51)
3-2 Margrét Arnbj. Vilhjálmsdóttir ('73)
1-0 Rósa Lind F. H. Víkingsdóttir ('15)
2-0 Sara Atladóttir ('28)
2-1 Harpa Karen N. Halldórsdóttir ('43)
2-2 Tara Dís Ármann ('51)
3-2 Margrét Arnbj. Vilhjálmsdóttir ('73)
ÍR og Smári áttust við í lokaleik kvöldsins í Lengjubikar kvenna og úr varð gríðarlega mikil skemmtun.
Rósa Lind Víkingsdóttir og Sara Atladóttir skoruðu fyrstu tvö mörkin fyrir heimakonur í liði ÍR en Harpa Karen Halldórsdóttir og Tara Dís Ármann jöfnuðu leikinn með mörkum sitthvoru megin við hálfleik.
Það var mikil spenna í síðari hálfleik og leit sigurmarkið dagsins ljós á 73. mínútu. Þar var Margrét Vilhjálmsdóttir á ferðinni.
Þetta var fyrsti leikur ÍR í Lengjubikarnum en Smári er með tvö stig eftir þrjár umferðir.
Athugasemdir



