Það fór einn leikur fram í B-deild Lengjubikars karla í kvöld þar sem Ýmir lagði KH að velli.
Emil Skorri Brynjólfsson, Styrmir Hjaltalín og Theodór Unnar Ragnarsson skiptu mörkunum á milli sín í 3-1 sigri. Ýmir komst í þriggja marka forystu áður en Birgir Ólafur Helgason minnkaði muninn.
Ýmir er með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Einu stigi meira heldur en KH.
Í C-deildinni skildu KB og Stokkseyri jöfn á Domusnovavellinum.
KB missti Kristófer Bæring Sigurðarson af velli með beint rautt spjald eftir 26 mínútur. Tíu leikmenn KB gerðu þó markalaust jafntefli.
Bæði lið eiga fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðir deildarkeppninar.
Ýmir 3 - 1 KH
1-0 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('6)
2-0 Styrmir Hjaltalín ('20)
3-0 Theodór Unnar Ragnarsson ('51)
3-1 Birgir Ólafur Helgason ('60)
KB 0 - 0 Stokkseyri
Rautt spjald: Kristófer Bæring Sigurðarson, KB ('26)
Athugasemdir


