Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 18:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho: Vonandi verður Arbeloa stjóri Real Madrid í mörg ár
Mynd: EPA
Benfica mætir Real Madrid í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Benfica vann dramatískan sigur í lokaumferð deildakeppninnar þar sem markvörðurinn Anatoliy Trubin skoraði sigurmarkið gegn Real Madrid. Sigurinn tryggði Benfica sæti í umspilinu.

Jose Mourinho stýrir Benfica og er staðráðinn í að vinna stórlið Real Madrid.

„Mig langar mjög mikið að slá Madrid úr leik. En ég vil að Arbeloa vinni spænsku deildina og verði áfram þarna í mörg ár því hann er mjög hæfileikaríkur. Hann er Madrídingur og er með stóran persónuleika," sagði Mourinho.

Alvaro Arbeloa tók við Real Madrid af Xabi Alonso í síðasta mánuði. Mourinho stýrði Real frá 2010-2013 en þá var Arbeloa leikmaður liðsins.
Athugasemdir
banner
banner