Birnir Snær Ingason, leikmaður Víkings, fer tímabilið vel af stað en hann gerði sitt fyrsta mark í 2-0 sigrinum á Fylki í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Fylkir
Birnir skoraði með laglegu skoti á 10. mínútu leiksins og í kjölfarið bættu Víkingar við öðru með skalla frá Oliver Ekroth.
Víkingar hafa unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu og líta ansi vel út.
„Við byrjuðum mjög vel, svona fyrsta korterið og komumst 2-0 yfir. Hefði verið frábært að fá þriðja markið inn því það gerir helling, en við gerðum það ekki. Sigldum þessu samt fullkomlega heim.“
„Það er geggjað að byrja inná og það sem maður vill. Ég finn það hjá sjálfum mér að mér finnst ég betur kominn inn í þeta en í fyrra og var þá að ströggla við form og annað. Allt annað núna og geðveikt að ná marki í fyrstu tveimur leikjunum,“ sagði Birnir við Fótbolta.net.
Markið hans Birnis var laglegt en hann fékk sendingu frá Oliver Ekroth. Hann keyrði hægra megin og lét síðan vaða á markið en boltinn virtist hafa farið í Orra Svein og í netið. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, bað um nákvæmlega þetta á liðsfundinum í gær.
„Þetta var búið að vera helvíti opið fyrsta korterið. Arnar bað um einn Robben á fundinum í gær og ég henti í einn hægri fótar Robben.“
Markmiðið var að halda eftir þessi tvö mörk enda buðu aðstæður ekki upp á mikið annað.
„Þetta var bara þannig að þeir voru ekkert að skapa sér eitthvað mikið en erfitt í þessum aðstæðum og við fórum aðeins niður á völlinn og reyndum að sigla þessu heim sem við gerðum fullkomlega.“
Oliver Ekroth skoraði annað mark sitt í öðrum leiknum en varnarmaðurinn er einnig kominn með eina stoðsendingu.
„Já, shit. Hann skoraði líka þá en já ég held að hann verði markahæstur núna,“ grínaðist Birnir í lokin.
Athugasemdir























