Fyrirliðinn Aaron Ramsey var ekki valinn í landsliðshóp Wales fyrir komandi umspilsleiki. Óvissa ríkir um framtíð hans fyrir landsliðið.
Ramsey er 35 ára og hefur verið án félags síðan hann yfirgefa mexíkóska félagið Pumas í desember en hann hafði þá ekki leikið fyrir liðið síðan í september.
Ramsey er 35 ára og hefur verið án félags síðan hann yfirgefa mexíkóska félagið Pumas í desember en hann hafði þá ekki leikið fyrir liðið síðan í september.
Skortur á aðalliðsfótbolta ásamt röð meiðsla gera það að verkum að Ramsey hefur ekki spilað fyrir Wales síðan í september 2024.
Ramsey, sem er fyrrum leikmaður Arsenal og Juventus, hefur sagst vilja spila fyrir Wales á HM í sumar ef liðinu tekst að komast þangað. Möguleikar hans á að spila fyrir þjóð sína á mótinu virðast hinsvegar afskaplega takmarkaðir.
Craig Bellamy stýrir velska liðinu.
Wales er að fara að mæta Bosníu og Hersegóvínu 26. mars og ef sigur vinnst þar mun liðið leika úrslitaleik við Ítalíu eða Norður-Írland fimm dögum síðar, þar sem HM sæti verður í boði. Sigurlið umspilsleiðarinnar verður í riðli með Kanada, Sviss og Katar á HM.
Velski hópurinn
Darlow, Ward, Davies, King, Dasilva, Norrington-Davies, Lawlor, Cabango, Rodon, Williams, Kpakio, Ampadu, Sheehan, J James, Cullen, J Colwill, Wilson, Brooks, Broadhead, Johnson, Thomas, Harris, Koumas, D James, Matondo, R Colwill.
Athugasemdir



