Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
   sun 17. september 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Dimova afgreiddi KH
Kvenaboltinn
Mynd: Heimasíða Sindra
Sindri 2 - 1 KH
1-0 Inna Dimova ('11 )
1-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('89 )
2-1 Inna Dimova ('90 )

Inna Dimova skoraði bæði mörk Sindra sem lagði KH að velli, 2-1, í 2. deild kvenna í gær.

Dimova skoraði fyrra mark sitt á 11. mínútu áður en Ágústa María Valtýsdóttir jafnaði á 89. mínútu.

Nokkrum mínútum síðar gerði Dimova sigurmarkið fyrir heimakonur en úrslitin voru nokkuð óvænt í ljósi þess að KH vann fyrri leik þessara liða á tímabilinu, 8-2.

Sindri hafnaði í næst neðsta sæti deildarinnar með 7 stig en KH sætinu fyrir ofan með 8 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner