Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
Venni: Ég get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   lau 18. júlí 2020 20:11
Atli Arason
Sævar Atli: Vorum eiginlega bara virkilega lélegir
Lengjudeildin
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknismanna úr Breiðholtinu var ángæður að fá öll stigin í leik dagsins gegn Magna eftir lélegan leik Leiknis að hans sögn.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 2 -  1 Magni

„Þrjú stig. Það er svona það eina sem við getum tekið út úr þessu. Við höfum oft átt betri daga. Vorum eiginlega bara virkilega lélegir. Þannig að fá 3 stig er virkilega mikilvægt þegar maður á vondan dag."

Sævar skoraði sigurmark Leiknis í dag og var hann beðin að lýsa markinu sem hann skoraði.

„Ég er orðinn smá pirraður. Ég sé að þeir eða hann er að fara að negla boltanum fram, þannig að ég set góða pressu á hann og vinn boltan af honum. Síðan bara keyrði ég af stað og næ að komast framhjá einum eða tveim. Lít svo inn í teiginn og sé það eru nokkrir þarna en enginn sem ég þorði að gefa á, þannig ég lét bara vaða. Sem betur fer fór boltinn inn," sagði Sævar í leikslok.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner