Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. maí 2023 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Burn: Ég er orðinn nokkuð góður í að renna mér á hnjánum
Mynd: Getty Images

Dan Burn skoraði í sigri Newcastle gegn Brighton í gær en þetta var aðeins annað mark hans fyrir félagið.


Burn var að spila gegn sínum gömlu félögum en hann gekk til liðs við Newcastle frá Brighton í janúar í fyrra. Hann er uppalinn hjá Newcastle en yfirgaf félagið ungur að árum.

Hann lét drauminn rætast og klæddist treyju Newcastle aftur. Hann var gríðarlega sáttur með sigurinn og markið.

„Þetta var erfiður leikur, Brighton er topp lið. Við virðumst vera góðir í kvöld leikjum, sérstaklega á heimavelli. Ég er hrifnari af því að hafa skorað með höfðinu, ég veit ekki hvað ég gerði þegar ég skoraði, ég er orðinn nokkuð góður í að renna mér á hnjánum," sagði Burn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner