Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. maí 2023 20:30
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Magnaðir Magnamenn - Þriðji sigur Víðis
Magni kom til baka og gerði sigurmarkið seint í uppbótartíma
Magni kom til baka og gerði sigurmarkið seint í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Víðir er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir
Víðir er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir
Mynd: Víðir Garði
Víðir er áfram með fullt hús stiga í 3. deild karla en liðið vann þriðja leik sinn í dag er liðið lagði Kára að velli, 3-2, í Akraneshöllinni.

Daniel Fidalgo kom Víði á bragðið á 28. mínútu og bætti það gráu ofan á svart þegar Marínó Hilmar Ásgeirsson fékk rauða spjaldið á 39. mínútu.

Þrátt fyrir það komust Káramenn aftur inn í leikinn er Guðfinnur Þór Leósson jafnaði á 54. mínútu. Tvö mörk með tíu mínútna millibili kom Víði í þægilega forystu áður en Fjalar Örn Sigurðsson minnkaði muninn undir lok leiksins.

Víðir er með 9 stig eftir þrjá leiki en Kári aðeins 1 stig.

Magni átti frábæra endurkomu í 3-2 sigri á Ými. Liðið lenti tveimur mörkum undir snemma í síðari hálfleik en Kristinn Þór Rósbergsson minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu stuttu síðar.

Örvar Óðinsson jafnaði leikinn á 76. mínútu og þegar rúmar fjórtán mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði hann sigurmarkið. Dramatískara verður það ekki og Magni með 6 stig eftir þrjá leiki en Ýmir án stiga.

Elliði vann þá 3-1 sigur á Kormáki/Hvöt. Nikulás Ingi Björnsson skoraði fyrsta markið þegar innan við mínúta var liðin af leiknum og þá bætti Pétur Óskarsson við marki úr vítaspyrnu. Lazar Cordasic minnkaði muninn áður en Hlynur Magnússon tryggði sigur Elliða sem er með 6 stig. Kormákur/Hvöt er með 3 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Kári 2 - 3 Víðir
0-1 Daniel Beneitez Fidalgo ('28 )
1-1 Guðfinnur Þór Leósson ('54 )
1-2 Paolo Gratton ('68 )
1-3 Helgi Þór Jónsson ('78 )
2-3 Fjalar Örn Sigurðsson ('88 )
Rautt spjald: Marinó Hilmar Ásgeirsson , Kári ('39)

Kormákur/Hvöt 1 - 3 Elliði
0-1 Nikulás Ingi Björnsson ('1 )
0-2 Pétur Óskarsson ('24 , Mark úr víti)
1-2 Lazar Cordasic ('40 )
1-3 Hlynur Magnússon ('69 )
Rautt spjald: Sigurður Bjarni Aadnegard , Kormákur/Hvöt ('43)

Magni 3 - 2 Ýmir
0-1 Ásgeir Lúðvíksson ('52 )
0-2 Guðmundur Axel Blöndal ('56 )
1-2 Kristinn Þór Rósbergsson ('59 , Mark úr víti)
2-2 Örvar Óðinsson ('76 )
3-2 Örvar Óðinsson ('90 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner