Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. maí 2023 23:22
Brynjar Ingi Erluson
Mason um Kane: Hann gerir þetta á hverju tímabili
Mynd: Getty Images
Ryan Mason, bráðabirgðastjóri Tottenham, segir það alls ekkert óvenjulegt að Harry Kane hafi þakkað stuðningsmönnum fyrir stuðninginn eftir 3-1 tapið gegn Brentford í dag.

Kane, sem er varafyrirliði Tottenham, á eitt ár eftir af samningi sínum og er talið ólíklegt að hann verði áfram eftir þetta tímabil.

Hann er með 28 mörk í ensku úrvalsdeildinni á annars vonbrigðatímabili Tottenham.

Eftir tapið gegn Brentford fór hann fyrir framan stuðningsmenn og þakkaði þeim fyrir stuðninginn og veifaði í dágóðan tíma áður en hann fór inn í klefa, en Mason segir fólki að lesa ekki of mikið í það.

„Hann veifar áhorfendum á hverju einasta tímabili. Ég man að ég sat hérna fyrir tveimur árum og þið voruð sannfærðir um að hann væri á förum og sögðuð nákvæmlega sömu hlutina. Þetta er síðasti heimaleikur tímabilsins og hann vildi sýna þakklæti fyrir þann stuðning sem hann og við höfum fengið á tímabilinu,“ sagði Mason.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner