Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. maí 2023 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kórnum
Byrjunarlið HK og Víkings: Birkir Valur snýr aftur og Viktor kemur inn
Birkir Valur byrjar hjá HK.
Birkir Valur byrjar hjá HK.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Viktor Örlygur Andrason.
Viktor Örlygur Andrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK og Víkingur eigast við í áttundu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Víkingar sitja á toppi deildarinnar fyrir leikinn á meðan HK er í fjórða sætinu.

Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir leikinn og má sjá þau hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: HK 1 -  2 Víkingur R.

Birkir Valur Jónsson missti af síðasta leik gegn Keflavík en hann snýr aftur í byrjunarlið HK í dag. Brynjar Snær Pálsson kemur einnig inn en út fara Eiður Atli Rúnarsson og Atli Arnarson.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, gerir eina breytingu á sínu liði. Danijel Dejan Djuric fer á bekkinn og inn í hans stað kemur Viktor Örlygur Andrason. Ari Sigurpálsson gæti spilað sinn fyrsta deildarleik í sumar en hann er að koma til baka eftir meiðsli.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
5. Ahmad Faqa
6. Birkir Valur Jónsson
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Atli Hrafn Andrason
11. Marciano Aziz
14. Brynjar Snær Pálsson
21. Ívar Örn Jónsson
77. Eyþór Aron Wöhler

Byrjunarlið Víkings:
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Pablo Punyed
18. Birnir Snær Ingason
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen (f)
27. Matthías Vilhjálmsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner